100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi
Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi árið 2015 er tímamótanna minnst með ýmsu móti. Hér má nefna ráðstefnur, málþing, fundi og margt margt fleira (sjá nánar hér).
MARK er beinn þátttakandi í sumum þessara viðburða sem fara fram á árinu.
18. júní 2015 Vald og lýðræði - 100 árum síðar
Í Háskóla Íslands er 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna m.a. minnst með ráðstefnunni, Vald og lýðræði á Íslandi – 100 árum síðar. Meginþema ráðstefnunnar er margbreytileiki, þátttaka og lýðræðishugmyndir í íslensku samfélagi nú 100 árum eftir að kosningaréttur varð almennur á Íslandi. Í tengslum við ráðstefnuna verður Dr. Önnu Guðrúnu Jónasdóttur, prófessor í stjórnmála- og kynjafræði við Háskólann í Örebro veitt heiðursdoktorsnafnbót og verður hún fyrsti heiðursdoktorinn við Stjórnmálafræðideild HÍ.
Samantekt um ráðstefnuna Vald og lýðræði - 100 árum síðar (sjá hér).